Flýtilyklar








Fréttir
Nýr starfsmaður - byggingafræðingur
mánudagur 06.febrúar 2012
Aðalgeir Hólmsteinsson hefur verið ráðin til starfa hjá Búseta. Aðalgeir er byggingafræðingur að mennt,
og með langa reynslu af mannvirkjagerð og stjórnun byggingaframkvæmda. Aðalgeir sinnir áætlana- og samningagerð ásamt verkefnastjórn,
vegna nýframkvæmda og viðhaldsmála hjá Búseta. Aðalgeir hóf að starfa fyrir Búseta sem ráðgjafi árið 2011, og sem
fastur starfsmaður þess í ársbyrjun 2012. Aðalgeir mun meðal annars stýra framkvæmdum við nýjar íbúðir félagsins
í Austurkór auk fleiri verkefna sem eru í burðarliðnum.
Búseti - janúar auglýsing
Hér má sjá auglýsingu mánaðarins. Umsóknarfrestur í íbúðir í fyrstu auglýsingu er til kl. 16:00 þann
14. febrúar og úthlutun kl. 12:00 þann 15. febrúar. Hægt er að hringja á skrifstofuna milli kl. 10:00 og 12:00 þann 18. og fá
upplýsingar um röð umsækjenda. Efstu 2 í röð þurfa að mæta á skrifstofuna kl. 12:00 til að staðfesta úthlutun
sína.
Athugið að íbúðir sem eru ekki með umsóknarfrest má gera tilboð í hvenær sem er og gildir fyrstur kemur fyrstur fær sem nær samkomulagi.
Athugið að íbúðir sem eru ekki með umsóknarfrest má gera tilboð í hvenær sem er og gildir fyrstur kemur fyrstur fær sem nær samkomulagi.
Til að fylgjast með lausum íbúðum er best að skrá sig á póstlistann og skoða heimasíðu öðru hvoru. Athugið
að hægt er að gera tilboð hvenær sem er í þann hluta íbúða sem er í auglýsingunni undir "tilboð óskast" Hægt er
að gera tilboð með fyrirvara um skoðun.
Hafðu samband við skrifstofu til að spyrja nánar um þennan möguleika.
Hafðu samband við skrifstofu til að spyrja nánar um þennan möguleika.
Efst á baugi
Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í
miklu frosti. Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
- Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


