Flýtilyklar
Þverholt 13
270 Mosfellsbær
Þverholt 13-15 er endinn á eldri byggingu. Húsið er staðsett í hjarta bæjarins. Stutt er í alla þjónustu og útsýni af efri hæðum gott. Þetta er lyftuhús á fimm hæðum. Íbúðirnar eru 23 í allt. Þær skiptast í: Þrjár 4ra herbergja, níu 3ja herbergja og ellefu 2ja herbergja.
Á jarðhæð eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur. Þar eru einnig sorpgeymslur tengdar sorprennum. Flestar geymslur eru inni í íbúðunum nema með litlu 2ja herb. íbúðunum, þá eru þær staðsettar á jarðhæðinni. Í 3ja og 4ra herb. íbúðunum er þvottaherbergi en í 2ja herb. íbúðunum er gert ráð fyrir þvottavél á baði.
Góð bílastæði fylgja húsinu.
| Íbúðarnúmer | Stærð | Fjöldi herbergja | Staðsetning |
|---|---|---|---|
| 101 | 73.3 m² | 2 | 1. hæð til vinstri |
| 102 | 73.3 m² | 2 | 1. hæð til hægri |
| 201 | 82.6 m² | 3 | 2.h. |
| 202 | 53.7 m² | 2 | 2.hæð í miðju |
| 203 | 82.6 m² | 3 | 2.h. |
| 301 | 82.6 m² | 3 | 3.h |
| 302 | 53.8 m² | 2 | 3.h |
| 303 | 82.6 m² | 3 | 3.h |
| 401 | 82.6 m² | 3 | 4.h. |
| 402 | 53.7 m² | 2 | 4.hæð í miðju |
| 403 | 82.6 m² | 3 | 4.h. |
| 501 | 84.7 m² | 2 | 5. hæð til vinstri |
| 502 | 80.6 m² | 2 | 5. hæð til hægri |
Efst á baugi
Búseti er með 3 verkefni í gangi þessa stundina.
- Fjölbýli í Austurkór, Kópavogi (18 íbúðir)
- Raðhúsaíbúðir við Ísleifsgötu, Reynisvatnssás
- Fjölbýli við Einholt/Þverholt (rúmlegar 200 íbúðir)


