Skrifstofa Búseta hsf. lætur þinglýsa búsetusamningnum og sendir tilkynningu til orkuveitunnar og formanns húsfélagsins. Eftirfarandi atriðum þarf íbúi að huga að:
-
Merkja bjöllu og/eða póstkassa
-
Tilkynna flutning á lögheimili til Þjóðskrár.
-
Kynna sér húsreglur og lög um fjöleignahús.
-
Við mælum eindregið mér því að fólk tryggi innbú sitt gagnvart tjóni með innbústryggingu, en bruna og húseigendatrygging hjá Tryggingamiðstöðinni er innifalin i mánaðarlegu Búsetugjaldi. Hægt er að fá tilboð frá Tryggingamiðstöðinni ef fólk bætir við einni tryggingu eða fleirum. Umsókn um tilboðið fer fram í gegnum skrifstofuna.
-
Vegna flutnings á síma á að vera nóg að hringja í sitt símafélag og tilkynna þeim símanúmer fyrri íbúa (númerið stendur á afhendingablaðinu) og númerið sem flytja á. Almennt á ekki að þurfa mann á staðinn.
-
Sjónvarpstengi eiga að vera tilbúin til notkunnar. Misjafnt er hvernig loftnetskerfi er í húsunum en almennt er komið breiðband í nýrri hús. Ekki er sjálfgefið að búið sé að draga síma- og sjónvarpslagnir í öll síma-og sjónvarpstengi íbúðar og hugsað sem möguleg viðbót ef íbúar kjósa. Íbúum er frjálst að draga í þessar lagnir á eigin kostnað.