Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Búseti kaupir 24 íbúðir í Mosfellsbæ - Litlakrika 1

Búseti hsf. hefur undirritað samning um kaup 24 íbúðum af Atafl hf í Mosfellsbæ, Litlakrika 1. Um er að ræða lítið skemmtilegt hverfi með eigin skóla.
Allar íbúðir munu hafa stæði í bílgeymslu og góða geymslu innan íbúðar sem geta nýst sem herbergi kjósi íbúi þess og eykst þannig notagildi íbúða verulega. Í húsinu, sem er þrjár hæðir auk bílgeymslu, verða 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir auk tveggja fimm herbergja og ein 6 herbergja, á fyrstu hæð, sem ættu að nýtast vel stórum fjölskyldum. Þá verða einnig þrjár rúmgóðar íbúðir ætlaðar fyrir fatlaða.

Húsið er með svalainnganga og opið stigahús auk sér lyftuhús fyrir þá sem það kjósa.

Áætlaður byggingatími er 18 mánuðir og munu teikningar verða fyrirliggjandi á heimasíðu eftir 2-3 mánuði en verð á búseturétti og búseturéttargjaldi (mánaðargjald) ekki fyrr en á vordögum.



Efst á baugi

Janúar - búsetugjaldið hefur verið lækkað með tilliti til greiðslujöfnunarvísitölu. Lækkunin er allt frá nokkrum þúsund til u.þ.b. fimmtán þúsund króna.  Stjórn félagsins áskilur sér hins vegar þann rétt að endurskoða ákvörðunina, jafnvel á hluta íbúða allt eftir þróun mála í samfélaginu næstu misseri. Greiðslujöfnunin er þess eðlis að verið er að fresta hluta greiðslna sem færist á höfuðstól lána. Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning