Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Búseti styður ekki greiðsluverkfall

Ágæti íbúi

Stjórn Búseta styður ekki greiðsluverkfall og hvetur fólk til að standa skil á sínum skuldbindingum. Félagið er rekið án hagnaðarsjónarmiða og því endurspegla búsetugjöld kostnað við íbúð sem samanstendur af greiðslum af lánum, tryggingum, fasteignagjöldum, hússjóði og áætlun í viðhald.

Gjöld sem ekki eru greidd fara sinn farveg og skoðast sem vanskil og lendir greiðandi því í viðbótarkostnaði. Stjórn Búseta hefur hins vegar verið að þrýsta á að stjórnvöld endurskoði verðtrygginguna og komi á móts við fasteignaeigendur (sem búsetar eru í gegnum félagið) og leiðrétta áfallnar verðbætur. Það er von okkar að með þeim hætti megi ná fram leiðréttingu sem muni síðan skila sér til íbúa.


Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning