Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Búseturéttur er ekki það sama og íbúðaréttur !

Í fréttum sjónvarpsins í gær (28.1) varð framkvæmdastjóra Markarinnar það á að kalla íbúðarétt búseturétt sem er alrangt. Mikill munur er á þessum tveimur formum.

Í fréttum sjónvarpsins í gær (28.1) varð framkvæmdastjóra Markarinnar það á að kalla íbúðarétt búseturétt sem er alrangt. Mikill munur er á þessum tveimur formum.

Búseturéttur er skilgreint hugtak í lögum 66/2003 og á við þegar um samvinnufélag er að ræða, þá er eigandi að búseturétt rétthærri en íbúi með íbúðarétt eða afnotarétt eins og það er einnig stundum kallað. Búseturétthafi er nær því að vera með stöðu eiganda sem eigandi að félaginu (félagsmaður), fær vaxtabætur og með óuppsegjanlegan samning af hálfu félagsins. Hann getur einnig haft meiri áhrif á félagið og er því ekki leigjandi í þeim skilningi orðsins.

Þetta á ekki við um íbúðaréttinn sem er í raun almennur leigusamningur með ákveðnum breytingum varðandi tryggingafjárhæð og samning þar að lútandi. Réttarstaða íbúa skv. lögum er því umtalsvert lakari og öðruvísi í afnotaréttinum.



Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning