Dómur Búseta í vil í fjárdráttarmáli gegn Jóni Jóhannessyni fyrrverandi bókara félagsins.
Héraðsdómur hefur nú kveðið upp dóm í tveimur málum á hendur fyrrverandi bókara félagsins og um skeið gjaldkera til 2003, Jóni Jóhannessyni. Var Jóni gert skylt að endurgreiða með vöxtum alla þá peninga sem hann dró sér eða rúmlega 28 milljónir án vaxta. Í sakamáli ákværuvaldsins gegn Jóni var hann dæmdur í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi (mál nr. S-235/2010). Málið hefur áður verið kynnt félagsmönnum á aðalfundi 2009 og í fréttabréfi til allra íbúa í maí 2009. Brotin áttu sér stað árin 1996, 1997, 2000 og 2001. Þá dró hann sér einnig fé frá Búseta á Akranesi allt til ársins 2006, tæpar 4 milljónir sem hann er einnig dæmdur til að endurgreiða.
Það er við endurskoðun reikninga árið 2009 fyrir reikningsárið 2008 sem upp kemst um málið en þá hafði Jón hætt störfum fyrir félagið en var til aðstoðar við að setja nýjan starfsmann inn í starfið. Bankastaðfestingu vantaði fyrir fjárhæð sem átti að vera á bankareikningi sem síðar kom í ljós að var falsaður og ekki til. Jón hafði þá falsað bankayfirlit í 5 ár, fyrir árin 2003-2007. Stjórn og framkvæmdastjóri félagsins kallaði þegar til sérstakan endurskoðanda frá KPMG til að rannsaka málið sem hefur reynslu og þekkingu í svikamálum. Við rannsóknina komu í ljós tvær óútskýrðar hreyfingar fyrir árin 1996 og 1997 en megnið af fjárdrættinum átti sér stað á árinu 2000-2001. Jón hafði falsað bókhald félagsins og upplýsingar um eign í viðhaldssjóðum.
Þegar málið komst upp var það kært til lögreglunni sem þegar hóf rannsókn á því. Í fyrstu neitaði hann sök, þrátt fyrir að hafa áður játað málið fyrir stjórnarformanni, framkvæmdastjóra, endurskoðanda og sérstökum endurskoðanda KPMG. Jón sýndi á engan hátt samstarfsvilja til að upplýsa um málið og hefur með því aukið skaða félagsins vegna kostnaðar í tengslum við málið. Var honum m.a. boðið að afhenda eignir sínar til að minnka skaðann og bíða síðan dóms ákæruvaldsins en svaraði Jón því engu. Til að tryggja hag félagsins var ákveðið að kyrrsetja eignir Jóns sem voru kjallaraíbúð í hlíðunum og bíll. Aðrar eignir fundust ekki. Nokkrum dögum áður en kyrrsetning fór fram tókst Jóni að þinglýsa 50% hlut íbúðar sinnar á konu sína til að reyna skjóta undan eignum. Félagið mun fara fram á ógildingu á þessum málamyndagjörningi. Til að fá kyrrsetninguna staðfesta varð félagið að höfða sérstakt einkamál og krefjast skaðabóta. Á sama tíma höfðaði ákværuvaldið sakamál sem ákvarðar refsingu auk skaðabóta þess hlutar málsins sem ekki var í einkamálinu og tengdist kyrrsetningunni. Nú er komin niðurstaða í bæði þessi dómsmál og játaði hann sök í báðum málunum.
Stjórn og framkvæmdastjóri félagsins vill ítreka og vekja athygli á að þrátt fyrir þetta hörmulega atvik þá standi félagið sterkt. Á tímum þar sem bæði fjölskyldur og fyrirtæki verða fyrir bússifjum þar sem eignir hafa gufað upp, skuldir hækkað og kaupmáttur rýrnað hafi íhaldsamur rekstur og almenn varkárni félagsins í gegnum tíðina borgað sig. Félagið tapaði litlum fjármunum í bankahruninu og átti enginn hlutabréf þegar það varð. Eigið fé félagsins er jákvætt og sjóðstreymi gott. Skilið hefur verið á milli starfa gjaldkera og bókara frá árinu 2003. Þá ákvað stjórn félagsins að skipta um endurskoðanda í kjölfar atviksins. Það er hins vegar erfitt að verjast þegar einstaklingar leggja sig fram við að fela brot sín og blekkja.
Búseti á í dag tæplega 700 íbúðir þar af um 166 almennar leiguíbúðir og er búið í þeim öllum.


