Verða lán búseturétthafa greiðslujöfnuð ?
föstudagur 13.nóvember 2009
Samkvæmt lögum um greiðslujöfnun lána stendur húsnæðissamvinnufélögum til boða að sækja um jöfnun. Þessi mál
eru í skoðun hjá stjórn Búseta og mun ákvörðun verða tekin fljótlega.
Leiðin hefur sína kosti og galla en markmið félagsins er að reyna lágmarka húsnæðiskostnað íbúa, bæði til langs og skamms tíma. Að fara í greiðslujöfnunina veldur hærri vaxtakostnaði í framtíðinni en mun örugglega auðvelda mörgum á þessum erfiðu tímum. Ef ákveðið verður að fara þessa leið þá munu áhrifa hennar gæta í desember eða janúar nk. vegna umfangs við vinnu sem þessu fylgir og því hversu fljótt ÍLS getur afgreitt okkar beiðni. Lán félagsins fara ekki sjálfvirkt í greiðsluaðlögun nema um það sé sérstaklega sótt til stjórnar ÍLS. Ef þessi leið verður farinn má reikna með um 10-15Þ lækkunar á dýrustu íbúðunum en jafnvel aðeins um nokkur þúsund á þeim elstu.