Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Fréttir af AÐALFUNDI FÉLAGSINS 19. APRÍL

Fámennt en góðmennt var á fundinum en tæplega 30 manns mættu. Fundurinn var auglýstur í fréttablaðinu 2. apríl og fundarboðun send formönnum og gjaldkerum allra búsetufélaganna.

Dagskrá var samkvæmt samþykktum. Farið var yfir reikninga og þeir samþykktir. Litlar breytingar á rekstri. Félagsgjald samþykkt óbreytt. Þrjár breytingar voru gerðar á samþykktum.

Félagið fær aukna heimild til sölu á þjónustu til utanfélagsmanna (1), frestur til að halda aðalfund færður til maíloka (2) og ákvörðun um stofnun varasjóðs og greiðslu í hann sem nemur 0,5% af búsetugjaldi (3).

Inn í stjórn koma tvær konur, báðar búseturétthafar. Helga Egla Björnsdóttir í aðalstjórn, hún var áður varamaður og Jónina Lárusdóttir sem varamaður í hennar stað. Í stjórn hætti Guðrún Norðdahl og eru henni þökkuð góð störf.



Efst á baugi

Búseti er með 3 verkefni í gangi þessa stundina.

  • Fjölbýli í Austurkór, Kópavogi (18 íbúðir)
  • Raðhúsaíbúðir við Ísleifsgötu, Reynisvatnssás
  • Fjölbýli við Einholt/Þverholt (rúmlegar 200 íbúðir)
Hér má sjá kynningu frá 30 apríl á aðalfundi félagsins. Fyrirvari er um samþykki deiliskipulags og fjármögnun. Verð á búseturétti og mánaðargjöld liggja ekki fyrir. Kynning 30. apríl
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning