Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Frostið og rakinn

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar



  • Láta þvottavél vinda á hærri snúning, minnkar rakamagn í þvotti
  • Stór heimili, þ.e. margir í fjölskyldunni, gefa frá sér aukinn raka og þurfa því að vera á varðbergi í sambandi við loftræstingu og þvott
  • Lofta vel út daglega, stuttan tíma í senn
  • Passa að hiti sé á öllum ofnum – þeir eiga að vera vel heitir efst en kólna síðan/kaldir neðst. Á mjög köldum dögum getur þurft að hækka á ofnunum þannig að þeir séu ekki alveg kaldir neðst en muna að lækka þá aftur, annars er von á háum hitaveitureikningi
  • Huga að gardínum og húsgögnum – ekkert má hylja ofna eins og síðar gardínur eða sófabak, draga gardínur frá á morgnanna til að auka loftflæði um gluggana
  • Hafðu hurðir frekar opnar en lokaðar í herbergjum – bætir loftflæði um íbúð og varmaskipti
  • Rennandi vatn og langar sturtur auka rakamagnið – muna að loftræsta vel eftir böð/sturtu


Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning