Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Íbúðalánasjóður samþykkir greiðslujöfnun

Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur samþykkt beiðni stjórnar Búseta hsf. um greiðslujöfnun. Að svo stöddu liggur ekki fyrir hvenær hún mun taka gildi en ef allt gengur að óskum ætti félagið að geta lækkað búsetugjöld fyrir janúar en hugsanlega ekki fyrr en í febrúar.

Reiknistofa bankanna þarf að vinna breytingar á tölvukerfum og félagið síðan að leiðrétta gjöldin. Reikna má með að búsetugjöldin verði send seint út vegna þessa, mögulega ekki fyrr en í fyrstu viku janúar.

Ætla má að dýrustu íbúðir félagins sem byggðar eru eftir aldamót muni lækka mest eða 10-15 þúsund en eldri íbúðir mögulega aðeins um nokkur þúsund. Að svo stöddu er ekki hægt að fá upplýsingar um lækkun hjá hverjum og einum og verða búseturétthafar því að bíða átektar.


Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning