Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Aftur hægt að fá lánað fyrir búseturétti

Nú er aftur hægt að fá lánað fyrir 50% af kaupum á búseturétti.  Það er að segja lánið getur verið að hámarki helmingur af lágmarks búseturétti. Lánið er tekið í gegnum Íslandsbanka.

Um er að ræða óverðtryggt lán sem í dag ber 12,2% vexti (breytilegir kjörvextir + fast álag) Þetta teljast mjög góð kjör í samanburði við verðtryggð lán þar sem verðbólgan er um 10%. Miðað er við að afborganir séu jafnar og eru þær því hæstar fyrst og fara síðan lækkandi en í því lánsformi eru lánskostnaður í lágmarki þó greiðslubyrði sé ívíð hærri í upphafi. Lántakandi þarf að fara í greiðslumat og er það metið í hverju tilfelli fyrir sig hvort krafist er ábyrgðarmanna.

Dæmi um greiðslubyrði af 1.000.000.- til 5 ára er um 27.000.- á mánuði í fyrstu greiðslu og um 17.000.- í síðustu. Heildarlánskostnaður er því rúmlega 300.000.-  Hægt er að fá lánið í lengri eða styttri tíma.

Hafðu samband við skrifstofu til að fá meiri upplýsingar.


Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning