Búseti

Búseti Reykjavík

Fréttir

Úthlutun lokið - Þverholtið 2ja og Gvendargeisli 4ra enn lausar - fyrstur kemur fyrstur fær

Aðeins fjórar umsóknir bárust í þá þrjá búseturétti sem í boði voru nú í september. Þeir sem fengu úthlutað eru númer 9950 og 11287 sem eru númer síðan 2004 og 2007. Tveir hættu við og því eru tveir réttir á lausu.

Athugið að umsóknir í þessa rétti eru bindandi og nauðsynlegt er að setja inn á þær upphæð í reitinn "verð", hvort sem fólk býður lágmark, hámark eða eitthvað þar á milli. Seljandi réttarins getur síðan komið með verðtilboð á móti.

Þverholt 13 - 101, Mosfellsbæ, jarðhæð, 73.3fm, 2ja herb., laus fyrri part októbermánaðar. Búsetugjald kr. 95.608, búseturéttur frá 1.485.293 - til 2.020.363.-
Gvendargeisli 17 - 204, Reykjavík, önnur hæð, 96fm, 4ra herb., laus, Búsetugjald kr. 133.816, búseturéttur 3.507.309.-
Næsta auglýsing verður 6. október


Efst á baugi

Janúar - búsetugjaldið hefur verið lækkað með tilliti til greiðslujöfnunarvísitölu. Lækkunin er allt frá nokkrum þúsund til u.þ.b. fimmtán þúsund króna.  Stjórn félagsins áskilur sér hins vegar þann rétt að endurskoða ákvörðunina, jafnvel á hluta íbúða allt eftir þróun mála í samfélaginu næstu misseri. Greiðslujöfnunin er þess eðlis að verið er að fresta hluta greiðslna sem færist á höfuðstól lána. Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning