Búseti er húsnæðissamvinnufélag í eigu félagsmannanna sjálfra. Markmið félagsins er að sjá félagsmönnum sínum fyrir gæða húsnæði á sem bestu verði.
Til að fá búseturéttaríbúð verður viðkomandi að gerast/vera félagsmaður. Íbúi (rétthafi) kaupir
ákveðinn eignahlut í íbúð algengast milli 10 og 30% af verði hennar eða yfirleitt frá 1 upp í 3 milljónir kr. Íbúar eiga
annaðhvort rétt á vaxtabótum (í gegnum skattkerfið) eða húsaleigubótum frá viðkomandi bæjarfélagi. Mánaðarlegt
gjald íbúðar innifelur allan rekstur hennar nema rafmagn og breytist með vísitölu neysluverðs.
Eignahlutinn er ekki fast hlutfall af verðmæti eignar heldur hefur ákveðið lágmarksverð sem síðan framreiknast með vísitölu neysluverð sem myndar hámarksverð. Kaupandi gerir síðan tilboð sem getur ekki verið lægra en lágmark eða hærra en hámark.
Búsetaíbúðir - Hvernig eru reglurnar og hvernig sæki ég um íbúð
1. Þú gerist félagsmaður, borgar árgjald kr. 4.000.-. Þú færð félagsnúmer miðað við greiðsludag.
2. Félagið auglýsir lausar íbúðir (búseturétti) til umsóknar í Fréttablaðinu og á heimasíðunni www.buseti.is fyrsta virka mánudag í mánuði. Umsóknarfrestur er fram á annan þriðjudag mánaðarins og úthlutun íbúðanna fer svo fram annan miðvikudag mánaðarins. Allir félagmenn geta sótt um íbúðir merktar almennum lánum en til að sækja um íbúðir merktar tekjumarkslánum þarf umsækjandi að vera undir tekju- og eignamörkum.
3. Ef auglýstur réttur er með lágmarks og hámarksverði þarf umsækjandi að bjóða í hann. Hæsta tilboð og lægsta félagsnúmer ræður þegar fleiri en einn sækja um sama réttinn. Seljandi getur komið með gagntilboð eða hafnað tilboði.
4. Ef réttur selst ekki í fyrstu auglýsingu er hann áfram í boði á heimasíðunni og félagsmenn geta boði í hann. Sama gildir þá um rétt seljanda til gagntilboðs eða höfnunar.
5. Almenn er gengið frá kaupum á búseturétti á viku.
6. Þegar þú tekur við íbúð á hún að vera í góðu lagi, gólf bónuð og veggir/loft /gluggar málaðir og allar innréttingar hreinar og í lagi.
7. Samkvæmt búsetusamningi hefur rétthafi 30 daga til að gera athugasemdir.
8. Þegar íbúð er skilað á hún almennt að vera í sama ástandi og þegar fólk tók við henni, þ.e. heil og hrein og allt í góðu lagi.
Búseturétthafi hefur flest þau réttindi og skyldur sem íbúðareigendur hafa. Samningur rétthafans við félagið er bindandi og félagið getur ekki sagt honum upp. Rétthafinn fær einnig vaxtabætur eins og íbúðareigandi. Hann getur búið í húsnæðinu eins lengi og hann vill á meðan hann stendur í skilum með mánaðrgjöldin og stendur sína plikt gagnvart nágrönnum og félaginu sjálfu.
Kynntur þér fleiri upplýsingar hér á heimasíðunni m.a. spurt og svarað


