Félagsmaður
Allir félagsmenn geta sótt um búseturétt. Ef þú ert ekki félagsmaður þá er hægt að ganga í félagið með því að skrá sig hér á síðunni undir innganga og millifæra árgjaldið inn á reikning félagsins. Athugið að gjaldið sé greitt af reikningi þess sem verður félagsmaður en annars þarf að senda félaginu tölvupóst til að skýra greiðsluna.
Félagsgjaldið er innheimt árlega á vordögum og miðast við almanaksárið. Félagsaðildin hefur engar skuldbindingar í för með sér og hægt er að hætta í félaginu með því að senda tölvupóst þess efnis eða koma á skrifstofuna og skrá sig úr félaginu.
Íbúðir í boði - Mánaðarleg auglýsing og heimasíða
Þar sem íbúar geta búið eins lengi í íbúðum og þeim hugnast er ávallt nokkur óvissa milli mánaða hvaða íbúðir losna. Undantekning á þessu er þegar um nýjar eignir er að ræða þá eru íbúðirnar að jafnaði auglýstar með allt að árs fyrirvara. Með auglýsingu fylgja upplýsingar um hvenær áætlað er að íbúð losnar. Í eignaleit á vefsíðunni og á skrifstofu má fá upplýsingar hvenær hægt er að skoða íbúðina. Sýningartími er yfirleitt helgina fyrir úthlutun eða á mánudeginum.
Þegar íbúð er sagt upp þá er hún skráð á vefsíðuna undir lausar íbúðir. Félagið auglýsir síðan hverja íbúð a.m.k. einu sinni í dagblaði með ákveðinn umsóknarfrest þar sem allir félagsmenn geta sótt um.
Allar íbúðir sem losna eru auglýstar fyrsta virkan mánudag í mánuði með rúmlega viku umsóknarfrest. Viku síðar, á miðvikudegi, er umsækjendum raðað í númeraröð eftir félagsnúmeri og upphæð sem boðin er í búseturéttinn. Sá sem hefur lægsta (elsta) númerið (ef allir bjóða jafnt) eða hæsta tilboðið fær íbúðina.
Þær íbúðir sem ekki ganga út við auglýsingu eru auglýstar lausar sem ,,fyrstur kemur fyrstur fær" og þarf þá umsækjandi einnig að gera tilboð í búseturéttinn sem íbúa er heimilt að hafna og bíða eftir betra tilboði.
Ekki er haldið utanum neina biðlista og er mjög mismunandi hve lengi þarf að bíða eftir að íbúð losnar allt eftir stærð, hverfi og húsgerð. Jafnan er minnsta hreyfinginn á íbúðum í elstu hverfunum. Það er því oft sem fólk velur að fara inn í íbúð sem kannski var annað val og bíður síðan eftir að draumaíbúðin losnar.
Umsóknir
Á skrifstofu má nálgast umsóknareyðublöð. Hægt er að sækja um eins margar íbúðir og í boði eru en það er gert á sama umsóknarblaðinu. Þó beinum við þeim tilmælum til fólks að vera ekki að sækja um íbúð nema það geti hugsað sér að taka hana. Þá er hægt að sækja um íbúð ef maður er í vafa og eins ef viðkomandi hefur ekki komist til að skoða hana og þá fengið að skoða íbúðina.
Einnig er hægt sé að sækja um íbúð á netinu, undir lausar íbúðir, á síðunni um lausu íbúðina.
Umsóknareyðublað - hægt er að vista eyðublaðið í eigin tölvu, fylla út og senda með tölvupósti, faxa eða koma með það á skrifstofu.
Úthlutun
Á miðvikudeginum kl. 10-12 er hægt að hringja og fá að vita hvar í röðinni umsókn hvers og eins lendir. Þeir sem eru í 1-3 sætinu þurfa að mæta á skrifstofu félagsins kl. 12:00 úthlutunardaginn og fær þá sá íbúðina sem er í efsta sætinu. Ef einhver hinna þriggja mætir ekki þá færist íbúðin niður listann. T.d. ef að nr. 1 mætir ekki þá fær nr. 2 íbúðina ef hann mætir. Hægt er að senda umboðsmann fyrir sig. Ef enginn mætir á úthlutun fyrir viðkomandi íbúð (1-3) þá er hringt í þá sem eru á listanum og byrjað á nr. 4.
Bráðabirgðasamningur
Sá sem hefur fengið úthlutað þarf að ganga frá greiðslu búseturéttsins og undirrita bráðabirgðasamning innan viku frá úthlutun. Jafnan er miðað við að búseturétturinn sér greiddur við undirritun bráðabirgðasamningsins en mögulegt er að fá að dreifa greiðslum. Í þessum samningi er afhendingadagsetning ákveðin og er hún að nokkru leiti samningsatriði á milli seljanda búseturéttarins (íbúans) og kaupanda.
Meginregla við afhendingu er þó sú að umsækjandi sé tilbúinn að taka við íbúðinni innan þriggja mánaða frá úthlutun. Ef honum hugnast ekki sú afhending getur hann hætt við eða reynt að semja við seljandann. Oft er íbúðum hins vegar sagt upp með lengri fyrirvara og getur því verið allt að 6 mánuðir í afhendingu.
Afhending
Þegar kemur að afhendingu hefur eignin verið tekin út þar sem seljandi þarf að skila lyklum viku fyrir afhendingu. Íbúðin afhendist hrein og í lag m.t.t. aldurs og eðlilegs slits. Allir veggir eiga að vera heilir og eru jafnan nýmálaðir.
Afhending fer fram á skrifstofu félagsins þar sem samningur er undirritaður og lyklar afhentir. Við afhendingu greiðir kaupandi fyrsta mánuðinn eða það sem eftir er af mánaðagjaldi mánaðarins. Búseti tilkynnir rafmagnsveitu um íbúaskipti en íbúi ber að tilkynna hagstofu um breytingar á lögheimili.