Búseti

Búseti Reykjavík

Hlutverk og skyldur íbúa (við innflutning)

Við innflutning: 

Skrifstofa Búseta hsf. lætur þinglýsa búsetusamningnum og sendir tilkynningu til orkuveitunnar og formanns húsfélagsins.

Íbúi þarf að:

Merkja bjöllu og/eða póstkassa.

Tilkynna flutning á lögheimili til Hagstofunnar.

Gott er að kynna sér húsreglur og lög um fjöleignahús.

Við mælum eindregið mér því að fólk tryggi innbú sitt gagnvart tjóni, inni í búsetugjaldinu eru nú þegar tvær tryggingar og hægt er að fá tilboð frá Tryggingamiðstöðinni ef fólk bætir við einni tryggingu eða fleirum.  Umsókn um tilboðið fer fram í gegnum skrifstofuna.

Vegna flutnings á síma á að vera nóg að hringja í sitt símafélag og tilkynna þeim símanúmer fyrri íbúa (númerið stendur á afhendingablaðinu) og númerið sem flytja á, almennt á ekki að þurfa mann á staðinn.

Sjónvarpstengi eiga að vera tilbúin til notkunnar, misjafnt er hvernig loftnetskerfi er í húsunum en almennt er komið breiðband í þau nýju. Ekki er sjálfgefið að búið sé að draga síma- og sjónvarpslagnir í allar síma-og sjónvarpstengi íbúðar og hugsað sem möguleg viðbót ef íbúar kjósa. Íbúum er frjálst að draga í þessar lagnir á eigin kostnað

 

Efst á baugi

Janúar - búsetugjaldið hefur verið lækkað með tilliti til greiðslujöfnunarvísitölu. Lækkunin er allt frá nokkrum þúsund til u.þ.b. fimmtán þúsund króna.  Stjórn félagsins áskilur sér hins vegar þann rétt að endurskoða ákvörðunina, jafnvel á hluta íbúða allt eftir þróun mála í samfélaginu næstu misseri. Greiðslujöfnunin er þess eðlis að verið er að fresta hluta greiðslna sem færist á höfuðstól lána. Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning