Uppsagnarfrestur búsetur er 6 mánuðir Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við að íbúðin afhendist ekki seinna en 6 mánuðum
síðar í góðu ástandi. Uppgjör á búseturétti fer fram 4 vikum eftir að nýr íbúi hefur tekið við
íbúðinni.
Búseti leggur áherslu á að ástand íbúða félagsins séu í sem bestu lagi á hverjum tíma. Við endursölu
er íbúum gert að fara í gegnum ákveðinn gátlista (búa til hlekk
hér) sem ætti að tryggja gott ástand. Íbúðirnar eru þó sumar hverjar farnar að eldast og eru því farnar að
láta á sjá í einhverjum tilfellum. Almennt má lýsa öllum íbúðum á þennan veg: „íbúðir
Búseta eru heilar (ekki nagla- eða spartlför í veggjum) og hreinar, tilbúnar til innflutnings".
Takist ekki að selja búseturéttinn á uppsagnartímanum ber Búseti hsf ábyrgð á búsetugjaldinu eftir að honum lýkur og hefur umráðarétt yfir íbúðinni. Endurgreiðsla á búseturétti getur dregist í allt að sex mánuði eftir að uppsagnarfresti lýkur.
Þinglýst frumrit búsetusamnings með samþykki um aflýsingu á bakhlið VERÐUR að fylgja með þegar lyklum af íbúðinni er skilað. Áður en lyklum er skilað þarf íbúinn að panta úttekt. Búseti hsf, áskilur sér að úttekt og lagfæringar geti tekið allt að 7 daga eftir að íbúð er skilað. Íbúinn ber ábyrgð á búsetugjaldinu og kostnaði sem hlýst af lagfæringum, s.s. vegna málunar, þrifa og skemmda.

Úttekt kostar kr. 6.100. og silenderskipti kosta um kr. 3.500 og greiðast af íbúa. Íbúar geta fengið auka úttekt. Það getur komið
sér vel að hafa tækifæri til að laga það sem betur má fara. Kostnaðurinn er sá sami en greiðist eingöngu af
íbúa.
Á skrifstofu liggur frammi gátlisti til að auðvelda við skil á íbúðum.
Söluþóknun er kr. 55.000.