Það helsta:
- Allir geta sótt um lausar leiguíbúðir.
- Greiðslusaga/vanskilaskrá umsækjanda er
könnuð.
- Félagið áskilur sér rétt til að
biðja um meðmæli frá fyrri leigusala, atvinnurekanda eða skóla. Staðfesting um atvinnu eða nám styrkir
umsókn.
- Trygging er andvirði 3ja mánaða leigu og er greidd með peningum sem geymdir eru á bankareikningi meðan á leigu stendur.
- Til að staðfesta umsókn er greitt staðfestingargjald kr. 30.000.- sem gengur upp í trygginguna.
- Leigan er greidd fyrirfram og innheimt með kröfu í heimabanka eða greiðsluþjónustu.
- Fyrsti samningur er til 6 mánaða sem verður svo að ótímabundnum samningi með 6 mánaða uppsagnarfresti.
- Gæludýrahald er bannað í leiguíbúðum félagsins.
Nánari upplýsingar og yfirlit yfir helstu atriði leigusamnings:
Leigusali skorar á væntanlegan leigutaka að lesa leigusamning vel. Eftirfarandi eru helstu atriði hans sem reynslan sýnir að mikilvægt er að leigutaki þekki. Athugið þetta er ekki tæmandi listi. Frávik geta verið í einstaka samningi.
Samningstími og uppsögn: Leigusamningur er fyrst tímabundinn í 6 mánuði á reynslutíma og eftir það sjálfvirkt ótímabundinn ef hvorugur aðili tilkynnir lok hans. Ótímabundinn samningur er með 6 mánaða uppsagnarfresti skv. húsaleigulögum. Við uppsögn getur leigutaki óskað eftir því að losna fyrr og er íbúðin þá auglýst laus skv. óskum hans. Leigutaki er samt sem áður ábyrgur fyrir greiðslu leigu á uppsagnartíma ef ekki tekst að leigja íbúð.
Leiguverð og Trygging: Leiguverð er með hússjóði og breyttist mánaðarlega með vísitölu neysluverðs. Trygging er að sama skapi verðbætt. Ekki eru sendir greiðsluseðlar nema þess sé óskað sérstaklega. Leiga er fyrirframgreidd með gjalddagi þann 1. og eindaga 7. hvers mánaðar. Kynntu þér innheimtuferlið ef þú lendir í vanskilum! Í samningi er ákvæði sem heimilar hækkun einu sinni á ári. Leigjandi getur hafnað hækkuninni og jafngildir það þá uppsögn. Þessu ákvæði hefur aldrei verið beitt. (sbr. 37 gr. húsaleigulaga)
Afhending, skil, úttektir og athugasemdafrestur: Íbúð afhendist í góðu lagi, gólf bónuð, veggir, loft og gluggar nýmálaðir eða í lagi. Við lok leigutímans skal skila íbúðinni í eins ástandi, þ.e. nýmálaðri, þrifinni og gólfum bónuðum. Endurmálun íbúðar á leigutíma er á kostnað leigutaka. (sbr. 22 gr. húsaleigulaga). Leigutaka er frjálst að negla nagla og setja upp gardínur til að skapa sér heimili en allt þetta þarf að færa til fyrra horfs í lok leigutíma.
Sumum íbúðum fylgja heimilistæki á borði við ísskáp, þvottavél, þurrkara, uppþvottavél og örbylgjuofn. Ef þessi tæki bila þá getur leigutaki valið hvort hann skilar tækinu eða kostar viðgerð sjálfur. Leigusali ber samt sem áður ábyrgð á viðhaldi ofns, helluborðs og gufugleypis. Leigutaki ber ábyrgði á sturtubarka, handsturtu og klósettsetu. Skemmdir sem verða á innréttingum og gólfefnum greiðir leigutaki fyrir ef ekki er um að ræða eðlilegt slit (t.d brotnar hurðir, brotnir tenglar eða rifinn gólfdúk). Gæta skal að því að húsgöng skemmi ekki gólfefni.
Ekki fer fram úttekt við afhendingu en leigutaki getur óskað eftir úttekt, annað hvort með fulltrúa Leigufélags Búseta honum að kostnaðarlausu, eða úttekt byggingafulltrúa viðkomandi sveitarfélags og greiðir leigutaki þá helming þess kostnaðar sem honum fylgir.
Leigjandi hefurfrest í 30 dagatil að gera athugasemdir við íbúðina um atriði sem hann telur að séu ekki í lagi eða mættu vera betri. Best er að gera allar slíkar athugasemdir skriflega og fá staðfesta móttöku þeirra. Nauðsynlegt getur verið að fylgja þeim eftir ef félagið bregst ekki við.
Skil og kostnað við skil: Þegar skila á íbúð þarf að panta úttekt sem framkvæmd er af skoðunarmanni. Hann metur ástand íbúðar og hvað þurfi að laga ef þarf og tekur við lyklum. Leigutaki er viðstaddur úttekt og samþykkir hana og hefur andmælarétt. Ef ágreiningur er um ástand og úttekt er hægt að óska eftir úttekt byggingafulltrúa.
Kostnaður við skil er mjög
breytilegur. Ef allt er í lagi og engar athugasemdir eru gerðar greiðir leigutaki einungis kostnað við úttekt og sílenderskipti skv. verðskrá. Ef
félagið þarf að laga eitthvað t.d. málingu eða þrif getur heildarkostnaður verið andvirði eins til þriggja mánaða leigu, allt
eftir ástandi og umgengni. Hægt er að fá tilboð eða áætlun í kostnað þegar fólk flytur því allra jafnan þarf
að mála íbúð við flutning en það er metið í úttekt.
Áður
en umsókn er afgreidd er vanskilaskrá umsækjanda könnuð. Meðfylgjandi yfirlýsingu samþykkir umsækjandi vegna heimildar til að sækja
upplýsingar um vanskilasögu.
Hluti upplýsinga frá Creditinfo byggja á samkeyrslu gagna og geta innihaldið sögulegar upplýsingar um
þróun vanskila og áhættumats. Undirritaður/umsækjandi samþykkir að slíkar upplýsingar séu notaðar við
ákvörðunartöku í tengslum við viðskipti, eftirlit í tengslum við slík þau, boð um tiltekin kjör og í öðrum
þeim tilvikum þegar Búseti eða Leigufélag Búseta (B/LB) hefur lögvarða hagsmuni af notkun umræddra upplýsinga. Að sama skapi veitir
undirritaður/umsækjandi heimild til þess að innheimtuaðilar er sjá um innheimtur vanskilakrafna fyrir B/LB, heimild til að sækja fyrrnefndar
upplýsingar til Creditinfo enda byggi slíkt á lögvörðum hagsmunum B/LB. Allar nánar upplýsingar um hlutaðeigandi upplýsingar Creditinfo og
kunna að vera notaðar af L/LB má finnawww.creditinfo.is.


