Búseti

Búseti Reykjavík

Viðhald og þjónustubeiðnir

Þjónustubeiðnir

Sé þörf á þjónustu eða aðstoð er hægt að panta tíma hjá viðhaldsfulltrúa. Dæmi um beiðnir eru lagfæring á skápum, hurðum eða hreinlætistækjum.

Sérstaklega er mikilvægt að kalla til aðstoð ef um einhvern leka er að ræða eða annað tjón sem veldur skaða. Vanræksla íbúa getur skapað honum skaðabótaskyldu ef ekki er brugðist við.

Öllum þjónustubeiðnum er reynt að svara og forgangsraða innan 1-3 virkra daga með tillögu um bókaðan tíma.

Heimsóknir fara fram í dagvinnu og eru tímar bókaðir frá kl. 10 - 16. Ef einhver tími hentar betur en annar er reynt að taka tillit til þess.

Ekki er greitt fyrir þessa þjónustu nema í undantekningartilfellum ef um verulegar skemmdir að völdum íbúa er að ræða. Íbúi greiðir hins vegar fyrir efni sé verkefnið þess eðlis.

Smelltu hér til að hafa samband

Tjón og tryggingar

Húseigendatrygging Búseta og leigufélagsins eru hjá Tryggingamiðstöðinni sem heldur úti tjónavakt allann sólarhringinn. Ef tjón verður er mikilvægt að bregðast strax við og tilkynna það TM í síma 515-2000 eða 800-6700 og síðan á skrifstofu Búseta við fyrsta tækifæri.

Sérstaklega er áríðandi þegar um vatnstjón er að ræða til að fyrirbyggja skaða og ber íbúum skylda til að reyna lágmarka tjónið eins og mögulegt.


Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning