Búseti og Leigufélaga Búseta starfa samkvæmt tveimur mismunandi lögum.
Búseti hsf. er húsnæðisssamvinnufélag og starfar sem slíkt samkvæmt sérstökum lögum um húsnæðissamvinnufélög nr. 66/2003. Húsnæðissamvinnufélagið er samkvæmt skilningi laganna þáttökufélag sem ætlað er að þjóna félagsmönnum samkvæmt tilgangi félagsins. Tilgangur Búseta hsf er að útvega félagsmönnum fjölbreytt og gott húsnæði á góðum kjörum en um leið að tryggja varðveislu og viðhald þeirra. Félagið þarf því gæta hagsmuna allra félagsmanna, hvort heldur sem þeir eru í íbúð félagsins eða eru að bíða eftir íbúð.
Félagið vinnur einnig samkvæmt samþykktum sem ákveðnar eru á aðalfundi. Samþykktir eru síðan útfærðar nánar í reglum félagsins og verklagi. Samþykktir geta tekið breytingum á aðalfundi hverju sinni samkvæmt dagskrá þeirra og eru allir félagsmenn bundnir af þeim.
Í samþykktum er einnig tilvísun í lög um fjöleignarhús. Tílvísunin er fyrst og fremst hugsuð sem starfsrammi fyrir húsfélögin (búsetufélögin í hverju húsi). Lögin um fjöleignarhús ber því fyrst og fremst að skoða sem leiðbeinandi fyrir þá ákvörðunarþætti íbúa (búseta) er snúa að ákvörðunum um sameiginlegan kostnað húsfélags, umgengni og viðhald sameignar, ákvarðanir um dýrahald og lóðaframkvæmdir. Búseti hsf. getur gripið inní ákvarðanir búsetufélags fari það út fyrir starfsramma sinn eða sinnir honum ekki. Í skilningi laganna er fjölbýlishús Búseta ekki fjöleignarhús þar sem eigandinn er einn.
Leigufélag Búseta ehf. starfar samkvæmt lögum um hlutafélög og lögum um húsaleigu og er dótturfélag Búseta hsf. Samkvæmt húsaleigulögum hefur leigutaki minni skyldur en búseturétthafi en um leið minni réttindi er snýr að uppsögn á leiguhúsnæðinu. Það er hins vegar markmið félagsins að leigjandi hjá leigufélaginu búi við mikið öryggi og því heyrir það til algjörra undantekningar ef félagið þarf að segja upp leigjanda.
Hér er að finna lög, samþykktir og tengla er tengjast starfsemi félagsins.
Athugið að þetta er ekki tæmandi listi

- Lög um húsnæðissamvinnufélög nr. 66/2003
- Samþykktir Búseta 2009
- Lög um húsaleigu 36/1994
- Lög um fjöleignarhús (athugið að þau eru til viðmiðunar um ákvarðanir búsetufélaga einstakra húsa)
- Lög um húsnæðismál 44/1998
- Reglugerð nr. 873/2001
Athugið að þetta er ekki tæmandi listi