Búseti

Búseti Reykjavík

Starfsmenn og stjórn

Starfsmenn Búseta

Aðalgeir Hólmsteinsson, verkefnastjóri framkvæmda.  Aðalgeir er byggingafræðingur að mennt, og með langa reynslu af mannvirkjagerð og stjórnun byggingaframkvæmda.  Aðalgeir sinnir áætlana- og samningagerð ásamt verkefnastjórn, vegna nýframkvæmda og viðhaldsmála hjá Búseta. Aðalgeir hóf að starfa fyrir Búseta sem ráðgjafi árið 2011, og sem fastur starfsmaður þess í ársbyrjun 2012.

Birna Andrésdóttir, gjaldkeri. Birna er gjaldkeri Búseta og sér einnig um þjónustu við búsetufélögin og umsjón með félagatali. Birna hóf störf í október 2003.

Gísli Örn Bjarnhéðinsson, framkvæmdastjóri.  Gísli hefur verið framkvæmdarstjóri Búseta frá því í janúar 2006. Áður hafði Gísli verið formaður félagsins og í stjórn þess frá 2001. Gísli lauk meistaranámi í stjórnun frá Álaborgarháskóla árið 2000. Viðtalstími framkvæmdastjóra er á miðvikudögum milli kl. 13-15 og þarf að panta tíma á skrifstofu. Gísli tekur aðeins síma eftir hádegi.

Guðrún Ingvarsdóttir, arkitekt, verkefnisstjóri þróunarverkefna. Guðrún er arkitekt að mennt og með víðtæka reynslu. Guðrún sinnir verkefnisstjórn, hönnun og skipulagsgerð vegna uppbyggingar á vegum Búseta. Einnig sér hún um mótun kynningarmála og áætlanagerð í samvinnu við framkvæmdastjóra. Guðrún hóf störf hjá félaginu í júlí 2011.

Halldór Ellertsson, skoðunarmaður fasteigna og viðhaldsþjónusta. Halldór er viðhaldsmaður Búseta og eftirlitsmaður. Hann sér einnig um þjónustu fyrir búsetufélögin. Halldór hóf störf hjá Búseta 1. janúar 2004 en hafði séð um sömu mál fyrir félagið frá 1995 í gegnum verktakafyrirtækið Viðhald og þjónusta ehf. Halldór er smiður að mennt og skoðunarmaður fasteigna.

Íris Margrét Valdimarsdóttir, sölustjóri, kaup og sala, leigusamningar. Íris hefur umsjón með allri samningagerð við íbúa vegna leigu og kaupa og sölu á búseturétti.  Íris hóf störf hjá Búseta í ágúst 1998.

Ragnar Smári Ingvarsson, viðhaldsþjónusta. Ragnar er viðhaldsmaður Búseta og sér einnig um þjónustu fyrir búsetufélögin og húsnæði leigufélagsins. Ragnar hóf störf hjá félaginu í júlí 2008. 

Sigurlaug Halldórsdóttir, reikningshald og áætlanir. Sigurlaug er bókari Búseta. Sigurlaug hefur starfað fyrir félagið síðan í september 2008.

Athugið að allar ábendingar og þjónustubeiðnir skulu berast á netfangið buseti@buseti.is eða með hringingu í aðalsíma félagsins 520-5788. Einnig er hægt að senda ábendingar, kvartanir eða þjónustubeiðnir með því að velja fyrirspurnir hér efst á síðunni.

 

Stjórn Búseta hsf.

Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi ár hvert, tveir stjórnarmenn, varamaður og formaður. Núverandi stjórn félagsins samkvæmt kosningu 19. apríl 2011 er:

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er formaður félagsins, Lektor Háskóla Íslands, fyrrverandi búseturétthafi

Finnur Sigurðsson, söluráðgjafi Nýherja, búseturétthafi.

Helga Egla Björnsdóttir, sölufulltrúi hjá Icelandair, búseturétthafi

Jón Hreinsson, MBA, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, félagsmaður

Jón Ögmundsson, Héraðsdómslögmaður hjá Fulltingi, félagsmaður

Efst á baugi

Frostið og rakinn
Mikið hefur borið á raka í gluggum undanfarið og sérstak-lega í miklu frosti.  Hér að neðan koma nokkur ráð til að minnka rakann.
  • Nota þurrkara með rakaþétti – föt sem þurrkuð eru inni eða á ofnum auka á rakamagnið sem þéttist á köldum fleti rúðunnar


Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning