Búseti

Búseti Reykjavík

Yfirlit

Búseti hsf á og rekur um 700 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu af ýmsum stærðum og gerðum.
Íbúðirnar eru lánaðar út með tvennskonar fyrirkomulagi. Annars vegar er um að ræða búseturéttaríbúðir og hins vegar leiguíbúðir. Hér gefur að líta stutt yfirlit á þessum tveimur valkostum:

Búseturéttaríbúð hjá Búseta hsf.                             
Leiguíbúð hjá leigufélagi Búseta                            
Til að fá íbúð þarf viðkomandi að vera félagsmaður.
Árgjald er 4000 og úthlutað einu sinni í mánuði
samkvæmt auglýsingu. Ef íbúð gengur ekki út gildir
"fyrstur kemur, fyrstur fær"

Búseturéttaríbúð er einskonar millibil milli leigu og
og kaupa. Segja má að þú sért að leigja af sjálfum
þér sem félagsmaður. Þannig býrð þú við meira
öryggi en í almennri leiguíbúð en um leið hefur
þú meiri skyldur.

Veitir rétt til annað hvort vaxtabóta eða
húsaleigubóta

Mánaðargjald (búsetugjald) innifelur svo til
allann húsnæðiskostnað og tekur mið af
kostnaðarverði. Mánaðargjald er vísitölutengt
og er endurreiknað til lækkunar eða hækkunar
með hliðsjón af kostnaðarliðum.

Búseturéttur er keyptur. Algengt verð er á bilinu
1,5-4 milljónir. Miðað er við tvö verð, lágmark og
hámark. Hámark er lágmarksverð verðbætt.
Við sölu er lágmark tryggt og hámark háð
eftirspurn.

Rétturinn er ekki í beinu sambandi
við verð fasteignar og felur ekki í sér eignamyndun.

Uppsagnarfrestur er 6 mánuðir, eftir það greiðir
eigandi ekki mánaðrgjald. Ef búseturétturinn
selst ekki greiðir félagið hann eftir 12 mánuði
frá uppsögn (sölutrygging).

Breytingar geta orðið á lögum, samþykktum
og reglum sem hafa áhrif réttindi og skyldur.
Allir geta sótt um leiguíbúð. Lausar íbúðir er
auglýstar þegar þær losna og dregið úr
hver fær. Ef íbúð gengur ekki út gildir reglan
að fyrstur kemur, fyrstur fær.

Allar íbúðir félagsins eru hugsaðar sem langtíma-
leiga. Íbúi býr því við mikið öryggi og þjónustu.

Trygging er 3 mánuðir í peningum. Leiga er greidd
 fyrirfram í upphafi hvers mánaðar.

Í upphafi er 6 mánaða gagnkvæmur reynslutími.
Uppsagnarfrestur er 6 mánuðir eftir það.

Veitir rétt til húsaleigubóta

Innifalið í leigu er allur húsnæðiskostnaður. Íbúa
ber að taka innbústryggingu og borgar sjálfur
rafmagn íbúðar.

Félagið setur húsreglur og eru dýrahald bannað

Réttindi og skyldur taka mið af lögum um húsaleigu.

Efst á baugi

Janúar - búsetugjaldið hefur verið lækkað með tilliti til greiðslujöfnunarvísitölu. Lækkunin er allt frá nokkrum þúsund til u.þ.b. fimmtán þúsund króna.  Stjórn félagsins áskilur sér hins vegar þann rétt að endurskoða ákvörðunina, jafnvel á hluta íbúða allt eftir þróun mála í samfélaginu næstu misseri. Greiðslujöfnunin er þess eðlis að verið er að fresta hluta greiðslna sem færist á höfuðstól lána. Lesa meira
TM - Efst á baugi

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning