Aðalfundur 2025

Framboð til stjórnarsetu hafa borist félaginu

Eins og fram hefur komið fjölmiðlum og á vefsíðu félagsins boðar Búseti til að­al­fund­ar miðvikudaginn 28. maí 2025 kl. 17:00. Aðalfundurinn verður haldinn á Grand hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík. Aðalfundarstörf verða samkvæmt samþykktum.

Framboð til stjórnarsetu hafa borist félaginu og eru sem hér segir:

Formaður stjórnar Jón Ögmundsson er í framboði til endurkjörs. Þá hefur Helgi G. Bragason einnig boðið sig fram sem formann stjórnar Búseta.

Eftirtaldir einstaklingar hafa ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Búseta sem meðstjórnendur.

  • Erna B. Einarsdóttir (framboð til endurkjörs)
  • Helga Egla Björnsdóttir (framboð til endurkjörs)
  • Ingi Valur Jóhannsson
  • Kristín Ástgeirsdóttir
  • Rúnar Einarsson
  • Sigfríður Björnsdóttir
  • Sigrún Dögg Kvaran

Ragnar Sær Ragnarsson hefur boðið sig fram sem varamann í stjórn félagsins.