Breyting hefur orðið á framboði til stjórnarsetu, en Helgi G. Bragason hefur dregið framboð sitt til formanns til baka og Jón Ögmundsson því sjálfkjörinn formaður stjórnar Búseta á næsta aðalfundi.
Eftirtaldir einstaklingar hafa ákveðið að bjóða sig fram til stjórnar Búseta sem meðstjórnendur.
Ragnar Sær Ragnarsson hefur boðið sig fram sem varamann í stjórn félagsins.
Í dag mun Búseti opna kosningasíðu á vefsíðu félagsins þar sem frambjóðendur fá tækifæri til að kynna sig. Við hvetjum félagsmenn til að mæta á aðalfundinn miðvikudaginn 28. maí 2025 kl. 17:00. Hann verður haldinn á Grand hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík. Aðalfundarstörf verða samkvæmt samþykktum félagsins.