Aðalfundur 2026

Aðalfundur Búseta hsf. verður haldinn fimmtudaginn 28. maí nk. á Grand Hótel við Sigtún 28 í Reykjavík kl. 17:00.

Aðalfundur Búseta hsf. verður haldinn fimmtudaginn 28. maí nk. kl. 17:00 á Grand Hótel við Sigtún 28 í Reykjavík.


Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
  2. Framlagning ársreikninga til samþykktar og umræður um þá.
  3. Ákvörðun um fjárhæð inntökugjalds og árlegs félagsgjalds.
  4. Ákvörðun um stjórnarlaun.
  5. Ákvörðun um framlag til varasjóðs.
  6. Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins.
  7. Kosning formanns.
  8. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
  9. Kosning eins varamanns til tveggja ára.
  10. Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs.
  11. Önnur mál.

Atkvæðisrétt á fundinum hafa skuldlausir félagsmenn.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum.

Fundarboð birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 2. maí og fimmtudaginn 7. maí, Heimildinni 8. maí, á vef félagsins auk samfélagsmiðla. Búseturéttarhafar, formenn og gjaldkerar búsetufélaga fá einnig fundarboð.

Framboðum til aðalstjórnar skal skilað skriflega til stjórnar félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal framboð til formennsku sérstaklega. Framboðum skal skila á netfangið: bjarni@buseti.is.