Aðalfundur Búseta

Aðalfundurinn verður haldinn á Grand hótel miðvikudaginn 28. maí kl. 17:00

Aðalfundur Búseta verður haldinn miðvikudaginn 28. maí nk. kl. 17:00 á Grand hótel, Sigtúni 28 í Reykjavík. Aðalfundarstörf verða samkvæmt samþykktum Búseta.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
  2. Framlagning ársreikninga til samþykktar og umræður um þá.
  3. Ákvörðun um fjárhæð inntökugjalds og árlegs félagsgjalds.
  4. Ákvörðun um stjórnarlaun.
  5. Ákvörðun um framlag til varasjóðs.
  6. Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins.
  7. Kosning formanns.
  8. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
  9. Kosning eins varamanns til tveggja ára.
  10. Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs.
  11. Önnur mál.

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum. Atkvæðisrétt á fundinum hafa skuldlausir félagsmenn. Fundarboð birtist í Morgunblaðinu fimmtudaginn 8. maí, Heimildinni 9. maí  og á heimasíðu félagsins auk samfélagsmiðla. Formenn og gjaldkerar búsetufélaga fá einnig fundarboð.

Framboðum til aðalstjórnar skal skilað skriflega til stjórnar félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal framboð til formanns sérstaklega. Framboðum skal skila á netfangið: bjarni@buseti.is.