Aðalfundur Búseta 2023

Fundurinn verður haldinn á Grand hótel fimmtudaginn 25. maí kl. 17:00

Aðalfundur Búseta verður haldinn fimmtudaginn 25. maí nk. kl. 17:00 á Grand hótel, Sigtúni 38 í Reykjavík. Aðalfundarstörf verða samkvæmt samþykktum Búseta.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
  2. Framlagning ársreikninga til samþykktar og umræður um þá.
  3. Ákvörðun um fjárhæð inntökugjalds og árlegs félagsgjalds.
  4. Ákvörðun um stjórnarlaun.
  5. Ákvörðun um framlag til varasjóðs.
  6. Tillögur að breytingum á samþykktum félagsins.
  7. Kosning formanns.
  8. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
  9. Kosning eins varamanns til tveggja ára.
  10. Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs.
  11. Önnur mál.

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum. Atkvæðisrétt á fundinum hafa skuldlausir félagsmenn. Fundarboð birtist í Morgunblaðinu fimmtudaginn 4. maí sl. Formenn og gjaldkerar búsetufélaga fá einnig fundarboð.