Aðalfundur Búseta verður haldinn miðvikudaginn 28. maí nk. kl. 17:00 á Grand hótel, Sigtúni 28 í Reykjavík. Aðalfundarstörf verða samkvæmt samþykktum Búseta.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum. Atkvæðisrétt á fundinum hafa skuldlausir félagsmenn. Fundurinn er auglýstur á vef félagsins og samfélagsmiðlum. Auglýsing birtist birtist í Morgunblaðinu 8. maí, 13. maí og 15. maí og í Heimildinni 9. maí og 16. maí. Stjórnir búsetufélaga fengu einnig fundarboð.
Stjórn mun á fundinum leggja fram breytingar á samþykktum félagsins. Nánari upplýsingar um þær má nálgast á skrifstofu félagsins.
Framboðum til aðalstjórnar skal skilað skriflega til stjórnar félagsins a.m.k. 10 dögum fyrir aðalfund. Tilkynna skal framboð til formanns sérstaklega. Framboðum skal skila á netfangið: bjarni@buseti.is.