Aðstoð við ársreikningagerð

33 búsetufélög nýttu sér þjónustu Búseta við ársreikningagerð.

Í húsum Búseta eru starfrækt búsetufélög, sem allir íbúar hússins eru þátttakendur í. Íbúar kjósa sér stjórn sem sér um dagleg mál og rekstur félagsins. Félagsmenn setja sér húsreglur þar sem fjallað er um umgengni, dýrahald og fleira. Búsetufélagið heldur húsfundi eftir þörfum og aðalfund árlega þar sem lagður er fram ársreikningur félagsins til samþykktar. Ársreikningur er mikilvægur hluti af rekstri hvers búsetufélags, hann veitir innsýn yfir fjármál ársins, tryggir gagnsæi gagnvart búseturétthöfum og styður við ábyrgan rekstur.

Mikilvægt er að stjórnir búsetufélaga sinni þessu hlutverki sínu en fyrir því eru margvíslegar ástæður t.d:

  • Að tryggja upplýsingaskyldu gagnvart öðrum íbúum
  • Að tryggja hlutlausa yfirferð bókhaldsgagna
  • Að tryggja að tekjur séu í samræmi við gjöld vegna reksturs búsetufélagsins
  • Að tryggja að farið sé eftir bókhaldsreglum og lögum um ársreikninga

Búsetufélög þurfa ár hvert, fyrir 15. apríl, að skila til skrifstofu Búseta ársreikningi auk bókhaldsgagna og reikningsyfirlita.

Búseti býður upp á að gera ársreikninga fyrir búsetufélög og í ár nýttu 33 búsetufélög sér  þjónustu Búseta við gerð ársreiknings og afstemmingu bókhaldsgagna.

Fyrir ofangreinda þjónustu er greitt samkvæmt skv. verðskrá.

Nánari upplýsingar varðandi ársreikningagerð og skil á ársreikningum fást á skrifstofu Búseta.