Aukaaðalfundur Búseta

Stjórn Búseta boðar til aukaaðalfundar fimmtudaginn 12. nóvember kl. 17:00

Aukaaðalfundur verður haldinn á Grand hótel við Sigtún 38 í Reykjavík fimmtudaginn 12. nóvember kl. 17:00.

Dagskrá fundarins:

  1. Kjör fundarritara og fundarstjóra
  2. Kynning á niðurstöðum stefnumótunarvinnu í framhaldi af vinnustofum með hagaðilum
  3. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum og afgreiðsla þeirra

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum og atkvæðisrétt hafa skuldlausir félagsmenn.

Á aukaaðalfundinum verða kynntar niðurstöður stefnumótunarvinnu sem unnin hefur verið á undanförnum mánuðum í góðu samstarfi við KPMG og fjölbreyttan hóp hagaðila. Stjórn Búseta telur mikilvægt að kynna félagsmönnum niðurstöður þessarar vinnu og gefa þeim tækifæri til að kynna sér og ræða framtíðarsýn félagsins og þær áherslur sem munu móta starfsemi þess á komandi árum.

Á fundinum verða jafnframt kynntar og rökstuddar tillögur stjórnar að nokkrum breytingum á samþykktum félagsins. Tillögurnar miða fyrst og fremst að því að styrkja enn frekar umgjörð og stjórnarhætti Búseta, meðal annars með skýrari áherslum á hæfni, reynslu og faglegt verklag við skipan stjórnar. Markmiðið er að treysta enn frekar þann góða grunn sem félagið byggir á og tryggja að stjórnskipulag þess þróist í takt við aukið umfang starfseminnar og þær kröfur sem gerðar eru til nútímalegs og vel rekins húsnæðissamvinnufélags.

Búseti hefur vaxið og eflst á undanförnum árum og stendur í dag á traustum grunni. Sú vinna sem nú er til kynningar er liður í því að byggja áfram á þeim árangri og efla félagið enn frekar til framtíðar í þágu félagsmanna.

Hér fyrir neðan má finna annars vegar tillögur stjórnar að breytingum á samþykktum Búseta og hins vegar núgildandi samþykktir félagsins.

Samþykktir Búseta - Breytingartillögur

Samþykktir Búseta 2026