Búseti leggur sitt af mörkum til norrænnar útgáfu um húsnæðismál eldra fólks

Húsnæðismál eru órjúfanlegur þáttur af farsælli öldrun samfélaga

Búseti er virkur þátttakandi í starfi NBO – Housing Nordic, samstarfsvettvangi norrænna húsnæðisfélaga, en framkvæmdastjóri Búseta, Bjarni Þór Þórólfsson, á sæti í aðalstjórn samtakanna. NBO gaf nýverið út rit sem fjallar um húsnæðismál í ljósi ört vaxandi hlutfalls eldri borgara á Norðurlöndum.

Ritið, When home no longer fits – why housing must move to the centre of ageing policy, dregur saman reynslu og stefnumótun frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Þar er sýnt fram á að húsnæðismál eru órjúfanlegur þáttur af farsælli öldrun samfélaga og að aukin samvinna milli húsnæðis-, heilbrigðis- og velferðarkerfa sé lykill að því að fólk geti búið sjálfstætt sem lengst.

Íslenski kafli ritsins var unninn með þátttöku Búseta og fjallar meðal annars um þróun almenns húsnæðiskerfis hér á landi, áskoranir sem fylgja öldrun þjóðarinnar og mikilvægi þess að byggja upp fjölbreytt, hagkvæmt og aðgengilegt húsnæði fyrir eldra fólk. Þar er jafnframt fjallað um það hlutverk sem húsnæðissamvinnufélög gegna við að skapa öruggt húsnæði til framtíðar.

Útgáfan er mikilvægt framlag til norrænnar umræðu um framtíð húsnæðismála og undirstrikar virka þátttöku Búseta í norrænu samstarfi um þróun lausna sem styðja við aukin lífsgæði, sjálfstæða búsetu og öflugt velferðarsamfélag.

„Öldrun samfélagsins er eitt stærsta húsnæðismál næstu áratuga. Með þátttöku í NBO gefst Búseta tækifæri til að læra af reynslu annarra Norðurlanda en jafnframt að miðla íslenskri reynslu. Þekkingarsköpun og norrænt samstarf eru lykilþættir í að þróa húsnæðislausnir sem mæta þörfum fólks á öllum æviskeiðum,“ segir Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Búseta.

Hlekkur á ritið Housing Ageing Population