Viðskiptablaðið gefur út lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri í samstarfi við Kelduna. Þar er lagt mat á fjárhagslegan styrk og stöðugleika fyrirtækja út frá ströngum rekstrarskilyrðum. Í nýjustu úttekt blaðsins er Búseti meðal 25 efstu fyrirtækja landsins í flokki stórra fyrirtækja.
Búseti hefur vaxið umtalsvert á síðustu árum. Sú uppbygging hefur verið markviss og byggst á varfærni og faglegri áhættustýringu, með það að leiðarljósi að tryggja fjárhagslegan styrk og sjálfbæran rekstur til framtíðar. Í dag telur fasteignasafn Búseta um 1.500 íbúðir þar sem um 4.000 einstaklingar búa. Félagsmenn eru yfir 7.000 og heildarverðmæti fasteignasafnsins nemur vel yfir 100 milljörðum króna.
Samhliða umfangsmikilli uppbyggingu hefur félagið viðhaldið sterkri fjárhagsstöðu, en eiginfjárhlutfall Búseta er um 42%. Sérstaða félagsins felst ekki síst í því að það starfar án hagnaðarsjónarmiða og hefur á undanförnum árum náð að vaxa og eflast án opinberra stofnframlaga eða niðurgreiddrar fjármögnunar.
„Við erum afar stolt af því að Búseti sé í hópi fremstu stórfyrirtækja landsins. Þessi niðurstaða er mikil og ánægjuleg viðurkenning á þeim árangri sem náðst hefur og þeim trausta grunni sem félagið hefur byggt upp. Að baki liggur markviss vinna, ábyrg fjármálastjórn og metnaður fyrir því að byggja upp öflugt húsnæðisfélag til framtíðar. Það sem gerir þessa viðurkenningu sérstaklega ánægjulega er að hún endurspeglar árangur félags sem hefur það að meginmarkmiði að skapa fólki öruggt og gott heimili. Við viljum sýna að öflugur og ábyrgur rekstur getur farið saman við skýrt samfélagslegt hlutverk“, segir Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Búseta.
Á undanförnum árum hefur Búseti fest sig í sessi sem eitt af stærstu húsnæðisfélögum landsins. Félagið hefur lagt ríka áherslu á vandaða uppbyggingu og góða þjónustu við félagsmenn og íbúa. Sá árangur sem náðst hefur er ekki síst afrakstur öflugs starfsfólks, skýrrar stefnu og langtímasýnar í rekstri. Framundan eru spennandi verkefni og áframhaldandi þróun félagsins. Með traustan fjárhagslegan grunn, öflugt starfsfólk og skýra framtíðarsýn mun Búseti halda áfram að stuðla að fjölbreyttum, öruggum og vönduðum búsetukostum á höfuðborgarsvæðinu.
Viðurkenning Viðskiptablaðsins er því ekki aðeins ánægjuleg staðfesting á þeim árangri sem þegar hefur náðst, heldur einnig hvatning til að halda áfram að byggja upp öflugt og traust húsnæðisfélag í þágu félagsmanna og íbúa.