Búseti og Leigufélag Búseta eru framúrskarandi og til fyrirmyndar eins og síðustu ár

Traustur rekstur lykilatriði þegar kemur að húsnæðisöryggi og langtímahugsun

Eins og undanfarin ár hafa Búseti húsnæðissamvinnufélag og dótturfélagið Leigufélag Búseta hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki árið 2025. Aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi eru svokölluð Framúrskarandi fyrirtæki. Þau eiga það sammerkt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla allra hag. Til að teljast Framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði, varðandi lánshæfi, ársreikning, rekstrartekjur, rekstrarhagnað, eignarfjárhlutfall og fleira.

Þá hafa Viðskiptablaðið og Keldan útnefnt Búseta og Leigufélag Búseta Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2025. Til að teljast Fyrirmyndarfyrirtæki þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði er varða afkomu, tekjur, eignir og eignarfjárhlutfall.

Stjórn og starfsfólk Búseta er að vonum ánægt með góðan árangur í rekstri félaganna. Traustur rekstur er lykilatriði þegar kemur að húsnæðisöryggi og langtímahugsun.