Mikilvægum áfanga var náð í uppbyggingu Búseta í gær, 16. september, þegar byggingaverktakinn Sérverk afhenti félaginu formlega nýtt fjölbýlishús að Eirhöfða 3–5 á Ártúnshöfða. Húsið er nú komið í vörslu Búseta og næstu dagar verða nýttir til lokafrágangs áður en nýir íbúar fá lyklana að heimilum sínum.
Afhending hússins fór fram við hátíðlega og skemmtilega athöfn á staðnum. Sérverk hafði sérstaklega látið útbúa stóran táknrænan lykil með áletrun í tilefni dagsins og bauð gestum upp á kökuveitingar. Fulltrúar Búseta tóku formlega við húsinu og markaði stundin lok umfangsmikils byggingarferlis og um leið upphaf nýs kafla í sögu hússins. Nú tekur við lokaundirbúningur fyrir komu íbúanna. Unnið verður að lokaþrifum, yfirferð og öðrum lokafrágangi þannig að allt verði tilbúið þegar íbúðirnar verða afhentar búseturéttarhöfum. Afhending til íbúa er fyrirhuguð nú í september.
46 nýjar íbúðir á Ártúnshöfða
Eirhöfði 3–5 er sjö hæða fjölbýlishús með tveimur stigagöngum, lyftum og sameiginlegum bílakjallara. Alls eru 46 íbúðir í húsinu. Þar af eru 41 íbúð í eigu Búseta en Brynja leigufélag á fimm íbúðir. Íbúðir Búseta eru fjölbreyttar að stærð og gerð, allt frá stúdíóíbúð upp í fimm herbergja íbúðir og eru þær frá um 39 fermetrum upp í tæplega 163 fermetra.
Geymslur fylgja öllum íbúðum og í kjallara eru jafnframt sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur. Við húsið er skjólgóður sameiginlegur garður með gróðri og leiksvæðum og er hann hluti af stærra sameiginlegu garðsvæði aðliggjandi húsa.
Sérverk hefur annast byggingu hússins en ASK arkitektar hönnuðu það. Fjöldi annarra ráðgjafa og hönnuða hefur komið að verkefninu, þar á meðal Teknik, Myrra hönnunarstofa, Efla, Lumex og Landhönnun.
Búseti þakkar Sérverki og öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komið hafa að framkvæmdinni fyrir gott samstarf og vel unnin störf. Nú er eftir sá áfangi sem mestu máli skiptir – að fylla húsið af lífi og bjóða nýja íbúa velkomna heim að Eirhöfða 3–5.