Búseti er framúrskarandi og fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021

Leigufélag Búseta framúrskarandi fyrirtæki fimmta árið í röð

Búseti er eitt þeirra fyrirtækja sem Viðskiptablaðið og Keldan hafa útnefnt fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021. Búseti er í 12. sæti af þeim 1020 fyrirtækjum sem eru á listanum. Þá er félagið í 13. sæti yfir framúrskarandi fyrirtæki Creditinfo árið 2021.

Grundvöllur tilnefningarinnar eru rekstrarárin 2020 og 2019 ásamt því að tekið er tillit til rekstrarársins 2018. Afkoma þarf að vera jákvæð og uppfylla þarf ákveðin tekju- og eignaviðmið, ásamt eignarfjárhlutfalli. Aðrir þættir sem liggja til grundvallar eru m.a. skil á ársreikningi og rekstrarform félagsins.

Þá hefur Leigufélag Búseta verið í hópi framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo fimm ár í röð.

Stjórn og starfsfólk er að vonum ánægt með góðan árangur í rekstri félaganna.

fyrirmyndarfyrirtæki2018-21.PNG