Búseti tók í síðustu viku þátt í ráðstefnu NBO – Housing Nordic í Kaupmannahöfn, þar sem stjórnendur og sérfræðingar úr norrænum húsnæðisgeira komu saman til að ræða helstu áskoranir og tækifæri framtíðarinnar.
NBO er samstarfsvettvangur norrænna húsnæðisfélaga í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Samstarfið stuðlar að þekkingarmiðlun, tengslamyndun og sameiginlegri umræðu um þróun húsnæðismála á Norðurlöndum.
Poul Nyrup Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, setti ráðstefnuna með opnunarávarpi. Meðal helstu umræðuefna voru áhrif aukinnar alþjóðlegrar óvissu, loftslagsbreytinga, kostnaðarþróunar og lýðfræðilegra breytinga á húsnæðisgeirann og hvernig félög geti brugðist við þeim með framsýni og sveigjanleika.
Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Búseta, var meðal frummælenda og tók þátt í pallborðsumræðum norrænna leiðtoga í húsnæðismálum undir yfirskriftinni Navigating uncertainty – perspectives from Nordic housing leaders. Þar var meðal annars rætt um hvernig breytt heimsmynd hefur áhrif á forystu, ákvarðanatöku og langtímaáætlanir húsnæðisfélaga.
Á aðalfundi NBO, sem haldinn var í tengslum við ráðstefnuna, var Bjarni Þór jafnframt endurkjörinn í aðalstjórn NBO til næstu tveggja ára.
Þátttaka Búseta í NBO veitir félaginu mikilvægan vettvang til að miðla íslenskri reynslu, læra af norrænum samstarfsaðilum og taka virkan þátt í umræðu um þróun húsnæðismála til framtíðar.