Byggingatæknifræðinemar HR skoðuðu Eirhöfða 3 og 5

Nemendur frá HR skoðuðu nýbyggingu Búseta við Eirhöfða

Nýverið tóku þeir Hlynur Örn Björgvinsson, verkefnastjóri nýframkvæmda hjá Búseta og Halldór Ingi Elíasson byggingafræðingur hjá Sérverki, á móti nemum í byggingatæknifræði við Háskólann í Reykjavík ásamt Böðvari Bjarnasyni kennara þeirra.

Hópurinn skoðaði nýbyggingarverkefni Búseta við Eirhöfða 3 og 5 og veltu sérstaklega fyrir sér tæknilegum útfærslum, þ.m.t. á baðherbergjum, innréttingum, gluggafrágangi og öndunardúk sem settur er utan á einangrun áður en húsið er klætt. Einnig var nemendum sýnd uppbygging á bílakjallara sem verður á tveimur hæðum.