Miðvikudaginn 2. september nk. verður haldið fyrsta formannanámskeið Búseta.
Smelltu hér til að skrá þig á formannanámskeiðið.
Á formannanámskeiðinu verður meðal annars fjallað um fundi og ákvarðanatökur, fjármál, viðhald og framkvæmdir, húsreglur, öryggismál og samskipti við íbúa.
Sérstök áhersla verður lögð á verkaskiptingu milli Búsetufélags og Búseta og hvernig best er að takast á við algeng og krefjandi mál sem koma upp í starfi formanna og stjórna.
Fimmtudaginn 3. september verður haldið þriðja gjaldkeranámskeiðið fyrir þá sem ekki komust síðast. Smelltu hér til að skrá þig á gjaldkeranámskeiðið.
Á gjaldkeranámskeiðinu förum við yfir það hvenær á að skipta kostnaði jafnt og hvenær hann á að vera hlutfallsskiptur milli íbúða.
Einnig er farið yfir skjal sem við höfum útbúið til að auðvelda gjaldkerum alla áætlanagerð í fjármálum sem og að kynna hana á aðalfundum.
Við förum líka yfir ársreikningagerð og skil á þeim til skrifstofu Búseta. Kynnt verður „skapalón“ sem hægt er að vinna ársreikningana í.
Við hvetjum alla formenn og gjaldkera til að mæta á námskeið, hvort sem þeir eru nýir í starfinu eða með mikla reynslu af stjórnarstörfum fyrir sitt búsetufélag.
Námskeiðin verða haldin í fundarsal Búseta þann 2. og 3. september nk. kl. 17:15 í Síðumúla 10, 108 Reykjavík.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Við vonumst til að sjá sem flesta.