Forvarnarnámskeið um eldvarnir verður haldið 3. desember

Gagnlegt námskeið um eldvarnir og rétt viðbrögð við eldsvoða fyrir stjórnir búsetufélaga

Búseti býður stjórnarmönnum búsetufélaga á fræðslu- og forvarnarnámskeið í samstarfi við Bráðalausnir. Á námskeiðinu verður fjallað um eldvarnir, rýmingu húsnæðis, rétt viðbrögð við eldsvoða, samskipti við slökkvilið og rétta notkun slökkvibúnaðar. Þá fá þátttakendur tækifæri til að spreyta sig á verklegum æfingum þar sem þeir læra að slökkva eld með brunateppi og slökkvitæki.

Námskeiðið fer fram í Síðumúla 10 þann 3. desember kl. 17.00. Húsið opnar kl. 16.30 og verða fulltrúar Eldvarnarmiðstöðvarinnar á staðnum til að upplýsa þátttakendur um vörur og þjónustu fyrir búsetufélög.

Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Lárus Petersen varðstjóri og bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því hvetjum við áhugasama til að tryggja sér sæti tímanlega.

Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið