Fundir með búsetufélögum um eignir Búseta

Árið 2024 reyndist árangursríkt hjá Búseta og einkenndist af framfaraverkefnum, fjárfestingum og styrkingu á innviðum félagsins.

Árið 2024 reyndist árangursríkt hjá Búseta og einkenndist af framfaraverkefnum, fjárfestingum og styrkingu á innviðum félagsins. Sterk liðsheild og metnaðarfullt starfsfólk lagði grunn að öflugum rekstri þar sem áhersla var lögð á að bæta upplýsingaflæði, veita góða þjónustu og að mæta fjölbreyttum þörfum félagsmanna. Við höldum áfram á þessari vegferð og eru verkefni komandi mánaða fjölbreytt, en öll byggja þau á sömu grunnstoðum: vönduðum rekstri, samheldnu starfsfólki og metnaði til að efla búsetuöryggi á Íslandi.   

Þjónustu- og samskiptasvið og Eignaumsjón vinna nú saman að yfirgripsmiklu verkefni sem felur í sér yfirferð á öllum eignum Búseta.

Markmið verkefnisins er að fá heildstæða mynd af stöðu eignanna, meta viðhaldsþörf og styrkja samskipti við búsetufélögin. Í því samhengi mun starfsfólk Búseta heimsækja hverja eign og funda með búsetufélögum á staðnum.

Á fundunum verður farið yfir ýmsa þætti sem tengjast viðhaldi, ásýnd og nýtingu eignanna, auk þess sem hlustað verður eftir sjónarmiðum og ábendingum félagsmanna. Þessi samtöl eru mikilvægur þáttur í að bæta þjónustu og samvinnu til framtíðar.