Búseti hefur hafið samstarf við fyrirtækið Súrefni með það að markmiði að stuðla að vottaðri kolefnisjöfnun í starfsemi félagsins.
Virkar vottaðar kolefniseiningar tryggja raunverulega kolefnisjöfnun með mælanlegri, varanlegri og sannprófaðri bindingu kolefnis samkvæmt viðurkenndum alþjóðlegum stöðlum. Með þessu samstarfi tekur Búseti virkan þátt í loftslagsaðgerðum með því að styðja við verkefni sem einblína á kolefnisbindingu, endurheimt vistkerfa og aðrar sjálfbærar lausnir sem vottaðar eru samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Samstarfið er liður í stefnu Búseta um samfélagsábyrgð og umhverfisvitund og endurspeglar vilja félagsins til að draga úr vistspori sínu og leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar framtíðar.
Certificate of Verified Varbon Unit (VCU) Retirement
Skoða mótvægisaðgerðir fyrir losun árið 2024 hjá Verra Registry