Mótaðu framtíðina með okkur

Búseti á 21. öldinni

Hjá Búseta trúum við því að framtíðin mótist best í samtali – og við viljum gjarnan eiga það samtal við félagsmenn, búseturéttarhafa og þá sem eru í stjórnum búsetufélaganna.

Því sendum við þetta boð um að taka þátt í spennandi viðburði þar sem við í samstarfi við KPMG horfum saman fram á veginn og mótum framtíð Búseta. 

Viðburðurinn fer fram í nýendurgerðum höfuðstöðvum okkar að Síðumúla 10, þar sem við höfum skapað nútímalega og glæsilega aðstöðu fyrir skapandi viðburði.

Markmiðið er að bjóða upp á lifandi vettvang fyrir hugmyndir, skoðanir og hugarflug. Við viljum sérstaklega heyra þína rödd – hvað þú sérð fyrir þér, hvaða tækifæri þú telur mikilvæg og hvernig Búseti getur þróast enn frekar í takt við nýja tíma. Á viðburðinum verður lögð áhersla á að öll sjónarmið fái að njóta sín og allar hugmyndir vel þegnar.

Í samtalinu munum við meðal annars:

  • Ræða nýjar áherslur og framtíðartækifæri
  • Hlusta á ólíkar raddir og sjónarhorn kynslóða
  • Skoða hvernig Búseti getur áfram verið sterkur bakhjarl fólks á öllum ævistigum

Niðurstöður samtalsins munu nýtast beint í stefnumótun Búseta til framtíðar. Í hléi bjóðum við upp á góðar veitingar og spjall.

Við vonum innilega að þú sjáir þér fært að taka þátt, eiga með okkur gott samtal og leggja þitt af mörkum til áframhaldandi þróunar Búseta.

📅 16. febrúar milli kl. 15:00 og 17:00 fyrir kjörna fulltrúa í Búsetufélögum

📅 25. febrúar milli kl. 17:00 og 19:00 fyrir kjörna fulltrúa í Búsetufélögum

📅 11. mars milli kl. 17:00 og 19:00 fyrir yngri kynslóðina (18 - 35 ára)

📅 12. mars milli kl. 17:00 og 19:00 fyrir félagsmenn án búseturéttar

Við bjóðum upp á kaffi, te og léttar veitingar.

Á hverjum viðburði fara þeir sem mæta í pott og einn heppinn fær kr. 10.000.- gjafabréf hjá Kringlunni.