,,Mótaðu framtíðina með okkur" fer vel af stað

Fundirnir marka upphaf að markvissu og sameiginlegu ferli um næstu skref

Það hefur verið líflegt í höfuðstöðvum Búseta að undanförnu þar sem hagaðilar hafa komið saman á vel heppnaða viðburði til að móta framtíð félagsins í opnu og uppbyggilegu samtali. Viðburðirnir eru haldnir í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið KPMG.

Undanfarin ár hefur Búseti vaxið og styrkt stöðu sína á húsnæðismarkaði, en með auknu umfangi fylgir líka aukin ábyrgð. Á fundunum er leitað svara við lykilspurningum um framtíðarþróun, tækifæri og áskoranir. Markmiðið er að móta skýra stefnu í virku samtali þar sem ólík sjónarmið fá að heyrast. Hugmyndir þátttakenda nýtast beint í áframhaldandi stefnumótunarvinnu félagsins.

Fundirnir marka upphaf að markvissu og sameiginlegu ferli um næstu skref. Búseti þakkar öllum fyrir dýrmætt framlag í þessari mikilvægu vegferð.

Við munum halda næstu fundi miðvikudaginn 11. mars og fimmtudaginn 12. mars nk. fyrir félagsmenn félagsins. Við hvetjum alla til þess að skrá sig og taka þátt.

Boðið verður upp á kaffi, te og léttar veitingar. Einn heppinn þátttakandi fær 10.000 króna gjafabréf í Kringlunni.

Smelltu hér til að skrá þig 11. mars - Félagsmenn 18 - 35 ára

Smelltu hér til að skrá þig 12. mars - Félagsmenn án búseturéttar

Sá sem fékk gjafabréfið á síðasta fundi er Guðrún Dóra Guðmundsdóttir og á fyrsta fundinum var það Gunnar Páll Jakobsson. Starfsfólk Búseta sér um að koma bréfunum í réttar hendur.