Fimmtudaginn 22. október nk. verður haldið námskeið fyrir formenn búsetufélaga.
Smelltu hér til að skrá þig á formannanámskeiðið.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um fundi og ákvarðanatöku á vegum búsetufélaga. Þá verður farið yfir atriði sem snúa að fjármálum, viðhaldi og framkvæmdum, húsreglum, öryggismálum og samskipti við íbúa.
Sérstök áhersla verður lögð á verkaskiptingu milli búsetufélaga og Búseta og hvernig best er að leysa algeng mál sem upp kunna að koma.
Við hvetjum formenn til að mæta á námskeið, hvort sem þeir eru nýir í hlutverkinu eða með mikla reynslu af stjórnarstörfum.
Námskeiðin verða haldin í fundarsal Búseta (3. hæð) 22. október nk. kl. 17:15 í Síðumúla 10, 108 Reykjavík.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Við vonumst til að sjá sem flesta.