Vel sótt námskeið fyrir formenn og gjaldkera

Ánægja meðal stjórnarmanna búsetufélaga með námskeiðin

Námskeið Búseta fyrir formenn og gjaldkera búsetufélaga, sem haldin voru í byrjun september, tókust afar vel og voru vel sótt. Almenn ánægja var meðal þátttakenda og þóttu námskeiðin bæði fróðleg og gagnleg.

Valbjörk Ösp Óladóttir og Íris Margrét Valdimarsdóttir af þjónustu- og samskiptasviði Búseta leiddu námskeiðin og fóru yfir helstu verkefni og ábyrgð sem fylgja hlutverkum formanna og gjaldkera búsetufélaga. Meðal annars var fjallað um stjórnarstörf almennt og ákvarðanatöku, fjármál, viðhald og framkvæmdir, samskipti við íbúa og verkaskiptingu milli búsetufélaganna og Búseta.

Markmið námskeiðanna er að styðja stjórnir búsetufélaganna í þeirra mikilvæga starfi, miðla hagnýtum upplýsingum og skapa jafnframt vettvang til samtals og miðlunar á reynslu.

Mikil eftirspurn var eftir formannanámskeiðinu og því hefur verið ákveðið að halda annað námskeið 22. október nk.

Skráning á námskeiðið er hafin og hvetjum við formenn búsetufélaga, hvort sem þeir eru nýir í hlutverkinu eða reynslumiklir, til að nýta sér tækifærið.