Samvinna við búsetufélög og fræðsla

Starfsfólk Búseta hefur unnið ýmis verkefni með búsetufélögum á síðastliðnu ári.

Starfsfólk Búseta hefur unnið ýmis verkefni með búsetufélögum á síðastliðnu ári. Má þar m.a. nefna aðstoð við uppfærslu á húsbókum, aðstoð við gerð ársreikninga, undirbúning og aðstoð á aðalfundi félaganna og aðstoð við að finna úrlausnir á álitamálum. 

Fundar-og fræðsluröð

Starfsfólk Búseta vill auka samvinnuna enn meira og með nýjum glæsilegum fundarsal í Síðumúla 10 getum við  boðið félagsmönnum upp á ýmis fræðsluerindi, samstarfsvettvang og fundaraðstöðu.

Á haustmánuðum 2025 verður sett af stað fræðsluröð sem miðar að því að styrkja hlutverk og ábyrgð búsetufélaga og búa til umræðuvettvang fyrir búsetufélög og Búseta til að deila reynslu sinni og ræða um ýmis málefni.  

Fundar- og fræðsluröðin mun m.a. ná til eftirfarandi þátta: 

  1. Almenn kynning á Búseta til búseturéttarhafa 
  2. Samráðsfundir með kjörnum fulltrúum í búsetufélögum 
  3. Hlutverk og ábyrgð búsetufélaga 
  4. Skipulag funda, rétt fundarboðun og ritun fundargerða 
  5. Fræðsla til gjaldkera 
  6. Öryggis- og eldvarnarmál, þar með talið eigið eldvarnareftirlit 
  7. Rafræn vöktun, hvað ber að hafa í huga 
  8. Sorpflokkun 

Leiga á sal 

Búsetufélög hafa möguleika á að nýta fundarsal Búseta að Síðumúla 10 fyrir fundarhöld. Salurinn hentar vel fyrir aðalfundi og almenna húsfundi og önnur samskipti búsetufélaga. Pöntun á salnum fer fram í gegnum Þjónustu- og samskiptasvið Búseta og er æskilegt að bóka með góðum fyrirvara til að tryggja aðgengi. Starfsfólk Búseta getur setið fundinn og aðstoðað, sé þess óskað.