Það er komið sumar

Opnunartími og þjónusta í júní, júlí og ágúst

Sumaropnunartími skrifstofu Búseta tekur gildi frá og með 1. júní nk. til 30. ágúst nk.

  • Mánudaga - föstudaga 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00

Opnunartíminn á bæði við þá sem þurfa að sækja sér þjónustu á skrifstofuna sjálfa, sem og þá sem þurfa að hafa samband símleiðis.

Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér tæknina í tengslum við erindi sín t.d. við að:

Yfir hásumartímann verða margir starfsmenn í sumarfríi og því gæti orðið lengri bið á svörun fyrirspurna en venjulega.

Lausir búseturéttir verða auglýstir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar og yfir sumartímann þurfa óskir um sölumerferð á búseturéttum að berast með góðum fyrirvara.

  • Fyrir júní auglýsinguna: fyrir 18. maí nk.
  • Fyrir júlí auglýsinguna: fyrir 23. júní nk.
  • Fyrir ágúst auglýsinguna: fyrir 21. júlí nk.
  • Fyrir september auglýsinguna: fyrir 19. ágúst nk.

Sumarkveðja,
Starfsfólk Búseta