Búseti hefur opnað vef fyrir nýbyggingarverkefni félagsins við Stefnisvog 28 í Reykjavík. Vefurinn er á slóðinni https://stefnisvogur.buseti.is
Á vefnum er að finna allar helstu upplýsingar um íbúðirnar, húsið, opin hús og hverfið. Upplýsingar bætast við eftir efni og ástæðum. Þá má finna á vefnum ýmsar upplýsingar um nágrenni Stefnisvogs en Vogabyggð er í mikilli uppbyggingu.
Þú getur skráð þig á póstlistann hér.