Vel heppnað opið hús hjá Búseta

Búseti hélt tvö opin hús í Stefnisvogi 28 og má með sanni segja að viðburðirnir hafi tekist afar vel.

Búseti hélt tvö opin hús í Stefnisvogi 28  og má með sanni segja að viðburðirnir hafi tekist afar vel. Gestir fengu tækifæri til að skoða 13 nýjar íbúðir, í eigu Búseta, sem allar hafa stæði í bílakjallara og skemmtilegu útsýni í átt að Elliðaárvogi og smábátahöfninni.

Yfir 100 gestir mættu á opnu húsin og nutu leiðsagnar starfsfólks Búseta sem veitti upplýsingar um íbúðirnar og þau tækifæri sem búseturéttur býður upp á. Andrúmsloftið var létt og hlýlegt og gestir sýndu mikinn áhuga á þeim fjölbreyttu íbúðum sem eru í boði.

Við viljum þakka öllum þeim sem mættu og minnum á að umsóknafrestur rennur út á miðnætti 14.maí næstkomandi.