Aðalfundur Búseta var haldinn miðvikudaginn 28. maí sl. á Grand Hótel í Reykjavík. Fram fóru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur félagsins var lagður fram og farið yfir rekstur og stöðu Búseta. Jafnframt voru flutt fjölbreytt erindi um starfsemi félagsins, hagaðilasamtöl, stefnumótun, sjálfbærni og góða stjórnarhætti.
Jón Ögmundsson stjórnarformaður var í framboði til endurkjörs og var sjálfkjörinn til áframhaldandi starfa. Finnur Sigurðsson og Valur Þórarinsson ákváðu að gefa ekki kost á sér til endurkjörs eftir farsæl störf í stjórn félagsins. Karlotta Jóna Finnsdóttir og Ragnar Sær Ragnarsson buðu sig fram til stjórnar sem meðstjórnendur og voru bæði sjálfkjörin. Til varastjórnar voru Hildur Mósesdóttir, sem gaf kost á sér til endurkjörs, og Ásbjörn Unnar Valsteinsson sjálfkjörin.
Í ávarpi sínu fór Jón Ögmundsson yfir starfsemi félagsins og þau verkefni sem framundan eru. Hann þakkaði einnig þeim Finni Sigurðssyni og Vali Þórarinssyni fyrir þeirra góðu störf á liðnum árum í þágu félagsins. Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri kynnti ársuppgjör og fjárhagslega stöðu Búseta. Fram kom að félagið heldur áfram að styrkjast fjárhagslega, eignir samstæðunnar námu rúmlega 102 milljörðum króna í árslok 2025 og eiginfjárhlutfall var 42%. Þá voru um 7.000 félagsmenn í Búseta og um 4.000 íbúar bjuggu í íbúðum félagsins. Á árinu 2025 skrifuðu 178 einstaklingar undir samninga við Búseta eða Leigufélag Búseta. Jafnframt var greint frá niðurstöðum nýrra ánægjumælinga sem sýndu mjög jákvæða afstöðu félagsmanna og búseturéttarhafa til þjónustu félagsins.
Sævar Kristinsson frá KPMG kynnti stöðu umfangsmikillar stefnumótunarvinnu sem Búseti vinnur að. Við vinnuna hafa verið haldnar vinnustofur með starfsfólki, stjórn, kjörnum fulltrúum búsetufélaga, félagsmönnum og öðrum hagaðilum auk einstaklingsviðtala. Í niðurstöðunum kom fram að styrkleikar Búseta felast meðal annars í húsnæðisöryggi, hagkvæmni og samfélagslegu hlutverki félagsins. Sérstök áhersla var lögð á áframhaldandi þróun þjónustu, fjölbreytt húsnæðisframboð og innleiðingu nýrra tæknilausna.
Á fundinum var boðað til aukaaðalfundar síðar á árinu þar sem fjallað verður um niðurstöðu stefnumótunarvinnunnar ásamt svonefndu valnefndarfyrirkomulagi. Dr. Eyþór Ívar Jónsson sérfræðingur í stjórnarháttum flutti erindi um hlutverk og mikilvægi valnefnda í félögum. Hann fjallaði um hvernig valnefndir geti stuðlað að faglegri og markvissari stjórnarháttum með því að tryggja að hæfni, reynsla og fjölbreytni stjórna endurspegli þarfir félagsins hverju sinni. Í erindinu var lögð áhersla á gagnsæi, upplýsta ákvarðanatöku og mikilvægi þess að félagsmenn hafi aðgang að góðum upplýsingum við stjórnarkjör.
Þá kynnti Nikólína Dís Kristjánsdóttir frá matsfyrirtækinu Reitun niðurstöður árlegs UFS-mats (umhverfis- félags- og stjórnarhátta) Búseta. Félagið fer reglulega í gegnum úttektir Reitunar þar sem metnir eru stjórnarhættir, sjálfbærni og rekstrarlegir þættir. Þar hefur Búseti raðast meðal 12 bestu í einkunn og er yfir meðaltali innlendra útgefenda skuldabréfa á Íslandi. Sérstaklega var bent á sterka stöðu Búseta í félagsþáttum, þar sem félagið hlaut hæstu einkunn sem Reitun veitir í þeim flokki. Jafnframt var farið yfir framfarir í umhverfismálum, meðal annars vegna aukinnar áherslu á loftslagstengda áhættu, endurnýtingu og orkunýtingu, sem og góða stjórnarhætti og kröfur sem félagið gerir til birgja sinna.
Aðalfundurinn var vel sóttur og einkenndist af góðum umræðum um framtíð félagsins. Með sterkri fjárhagsstöðu, skýrri framtíðarsýn og áherslu á sjálfbærni og góða stjórnarhætti er Búseti vel í stakk búinn til að halda áfram uppbyggingu og þjónustu við félagsmenn á komandi árum.